Vinir Ara eru skemmtilegar verkefnabækur með refnum Ara og bestu vinum hans, þeim Ásu, Hreini og Lóu sem krakkar þekkja úr kennsluvefnum Icelandic Online – Börn. Einnig fást falleg veggspjöld með söguhetjunum.
Vörurnar fást í Bóksölu stúdenta, Forlaginu og í Pennanum-Eymundsson.
Leikir og þrautir
Nú eru komnar út fyrstu tvær bækurnar í bókaflokknum um Vini Ara, en alls verða gefnar út sjö bækur. Hver og ein hefur tengingu við ólík námskeið Icelandic Online - Börn, en vefurinn er öllum opinn að kostnaðarlausu.
Bækurnar Vinir Ara taka mið af Aðalnámskrá leikskóla og grunnskóla og byggja á rannsóknum á læsi og viðurkenndum kennsluaðferðum á fyrsta stigi lestrar. Grunnþættir þeirra eru: tengsl hljóða og tákna, sjónorð, lesskilningur og lesfimi, orðaforði sem tengist heimi barna og einfaldar setningar.
Bækurnar fást í Bóksölu stúdenta, Forlaginu og Pennanum-Eymundsson.
Fallegu veggspjöldin með bókstöfunum og þeim Ara, Ásu, Hreini og Lóu, eru nú fáanleg. Veggspjöldin eru prentuð á gæðapappír og fást í tveimur litum. Þau eru í stærð A3 (30x42 cm).
Veggspjöldin fást í Bóksölu stúdenta og Forlaginu.
Höfundar og útgefendur: Þorgerður Anna Björnsdóttir, Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir og Birna Arnbjörnsdóttir
Grafísk hönnun og umbrot: Bjarney Hinriksdóttir
Yfirlestur og prófanir: Dalía Jóelsdóttir, Felix Björn Davíðsson og Úlfur Bjarkarson Gardali
Prentun: Pixel prentþjónusta