Bækurnar Vinir Ara eru gefnar út af Fjöltyngi ehf. sem hefur það að markmiði að gefa út náms- og fræðsluefni fyrir börn og fullorðna á sviði tungumála. Fjöltyngi er í eigu Birnu Arnbjörnsdóttur, Halldóru Jóhönnu Þorláksdóttur og Þorgerðar Önnu Björnsdóttur.
Birna Arnbjörnsdóttir
er prófessor emeritus í annarsmálsfræðum við Háskóla Íslands. Hún hefur skrifað fjölda kennslubóka, fræðirita og fræðigreina, m.a. í íslensku sem öðru máli, um menntun tvítyngdra barna, máltöku barna, tungumálakennslu innflytjenda og kennslu tungumála á netinu, auk þess að vera verkefnisstjóri Icelandic Online frá upphafi.
Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir
hefur starfað við miðlun tungumála í gegnum námsefni, sýningahald, kennslu og viðburði í Alþjóðahúsi, Háskóla Íslands og Vigdísarstofnun, með sérstaka áherslu á tölvustutt tungumálanám, gagnvirkt fræðsluefni og íslensku sem annað mál. Hún var aðalhönnuður Icelandic Online - Börn og ritstjóri sýningarinnar Mál í mótun. Á síðustu árum hefur hún m.a. unnið við aðlögun íslensku að Evrópska tungumálarammanum og við þróun tölvustuddrar framburðarþjálfunar í íslensku í verkefninu Nýrómur.
Þorgerður Anna Björnsdóttir
hefur kennt börnum kínversku víða um land um árabil, á vegum Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa, auk þess að kenna fullorðnum íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Hún hefur skipulagt fjölda tungumálatengdra viðburða fyrir börn og fullorðna og leggur einnig stund á rannsóknir á samskiptum Íslands og Kína.
Bjarney Hinriksdóttir
er grafískur hönnuður og höfundur myndefnis í bókunum Vinir Ara og á vefnum Icelandic Online – börn. Hún hefur séð um grafíska hönnun og listræna stjórnun fyrir fjölmörg fyrirtæki og stofnanir, auk þess að reka fyrirtæki á sviði heilsueflingar og kenna jóga, dans og núvitund.
Hafðu samband!
halldoraj (a) gmail.com