Icelandic Online – Börn er líflegur og litríkur kennsluvefur sem inniheldur skemmtilegar þrautir, sögur og myndbönd sem henta vel þeim sem eru að taka fyrstu skrefin í lestrarnámi. Vefinn má nota í tölvum, símum og á spjaldtölvum – alveg ókeypis.
Prófa Icelandic Online - Börn.
Yfir 300 æfingar!
Á vefnum eru sjö námskeið á mismunandi þyngdarstigum sem innihalda yfir 300 æfingar.
Í fyrstu tveimur námskeiðunum er lögð áhersla á tæknina við að lesa, þ.e. að tengja hljóð við stafi og að læra að þekkja smáorð (sjónorð).
Í námskeiðum þrjú til sjö er áherslan á tengingu stafa í stutt orð og setningar í merkingarbæru samhengi.
„Icelandic online - Börn hefur nýst nemendum okkar vel þar sem námsefnið er einstaklega aðgengilegt og vel skipulagt. Það hentar sérstaklega nemendum sem eru á forstigi íslensku sem annars tungumáls og hefur einnig nýst nemendum allt upp í miðstig hjá okkur.“
- Jóhanna Reykjalín, grunnskólakennari við Djúpavogsskóla
„Tær snilld fyrir íslensk börn í útlöndum.“
- Fjóla Dögg Helgadóttir, foreldri
„Íslenska á netinu (Icelandic Online) fyrir börn er mikilvæg viðbót við námsefni sem er í boði fyrir sífellt stækkandi hóp barna með erlendan bakgrunn í skólakerfinu.“
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra
Skemmtilegir vinir
Æfingarnar eru tengdar saman með söguþræði og sömu persónur fylgja nemendum út námskeiðin.
Aðalpersónurnar eru dýr sem finnast í íslenskri náttúru. Refurinn Ari, lóan Lóa, ánamaðkurinn Ása og hreindýrið Hreinn.
Þessar skemmtilegu söguhetjur lenda í ýmsum ævintýrum sem spennandi er að fylgjast með.
Aðferðafræði Icelandic Online – Börn styðst við rannsóknir á grunnþáttum læsis og raunprófuðum kennsluaðferðum á fyrsta stigi læsis barna sem eru að tileinka sér málið á sama tíma.
Grunnáherslur í kennslunni eru tengsl hljóða og tákna, sjónorð, lesskilningur og lesfimi, orðaforði sem tengist heimi barna og einföld setningagerð.
Kennslan byggist á þeim meginreglum að textar hvetji til lesturs; stafir, orð og einfaldar setningagerðir séu kennd til að þjálfa bæði íslensku og lesfimi og séu kenndar í merkingarbæru samhengi með hjálp söguþráðar og skemmtilegra persóna.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra opnaði kennsluvefinn Icelandic Online fyrir börn við hátíðlega athöfn í Vigdísarstofu í Veröld – húsi Vigdísar þann 18. apríl, á fyrsta degi Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur 2023.
Skólabörn úr 5. og 6. bekk Landakotsskóla voru sérstakir gestir við opnunina og sungu tvö lög við ljóð Þórarins Eldjárns.
Verkefnisstjóri: Birna Arnbjörnsdóttir
Ritstjóri: Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir
Handrit: Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir, Þorgerður Anna Björnsdóttir og Birna Arnbjörnsdóttir
Verkefnastjóri hugbúnaðar- og forritunarvinnu: Úlfur Alexander Einarsson
Forritunarteymi: Anna María Steingrímsdóttir, Guðlaug Agnes Kristjánsdóttir, Gunnar Dofri Viðarsson, Júlía Hermannsdóttir, Saga Rut Sunnevudóttir, Sara Ósk Þorsteinsdóttir, Sigurður Birkir Sigurðsson og Þröstur Almar Þrastarson
Grafísk hönnun og myndskreytingar: Bjarney Hinriksdóttir
Myndbandagerð, hljóðupptökur og hljóðvinnsla: Davíð Hólm Júlíusson
Talsetning: Jón Bergsteinn Auðarson, Júlía Hermannsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Rebekka Þráinsdóttir, Þorgerður Anna Björnsdóttir og Þorri Elís Halldóruson
Yfirlestur og villuprófanir: Bergur A. H. Jónsson, Diljá Þorbjargardóttir og Þorri Elís Halldóruson
Ráðgjöf: Menntamálastofnun, Hulda Karen Daníelsdóttir, Renata Emilsson Pesková, Sigríður Sigurjónsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Branislav Bédi, Kolbrún Friðriksdóttir og Úlfar Bragason
Vefurinn er hýstur hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands. Um tækniumsjón sér Sara Ósk Þorsteinsdóttir.