Kennsluvefurinn Icelandic Online hefur um langt árabil verið eitt mest notaða námsefnið fyrir fullorðna, erlenda nemendur sem læra íslensku.
Icelandic Online námskeiðin eru ætluð byrjendum og lengra komnum, allt frá A1 til C1 á CEFR skala, og eru opin öllum endurgjaldslaust.
Prófa Icelandic Online.
Áratuga reynsla
Tæplega 300.000 manns víðs vegar um heiminn hafa nýtt sér Icelandic Online til íslenskunáms og nú eru yfir 80.000 virkir notendur skráðir á vefinn.
Verkefnið hefur verið í þróun frá árinu 2004 og fjölmargir annarsmáls- og íslenskufræðingar, kennarar og tölvunarfræðingar tekið þátt í þróunarvinnunni.
Námskeið Icelandic Online eru sex talsins og innihalda hátt á annað þúsund námsviðföng. Námsefnið er notað í fjarkennslu við Háskóla Íslands og sem hluti af háskólakennslu og á tungumálanámskeiðum víða um heim. Að fyrirmynd Icelandic Online voru námskeiðin Faroese Online og Finlandswedish Online gerð í Færeyjum og í Finnlandi.
Námskeið Icelandic Online hafa hlotið viðurkenningu Íslenskrar málnefndar, Hagnýtingarverðlaun Háskólans og sérstaka viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu.
Námskeið Icelandic Online voru þróuð við Háskóla Íslands í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar og Wisconsinháskóla. Birna Arnbjörnsdóttir hefur verið verkefnisstjóri Icelandic Online frá upphafi.
Aðrir sem störfuðu við Icelandic Online: Áki G. Karlsson, Bjarki M. Karlsson, Daisy Neijmann, Daníel Páll Jóhannsson, Gunnar Dofri Viðarsson, Gunnar S. Valgarðsson, Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir, Helga Hilmisdóttir, Helgi S. Sigurðsson, Hjörtur Einarsson, Hlíf Árnadóttir, Hreggviður Ársælsson, Ingibjörg Hafstað, John Mikkelsen, Jón Gíslason, Jón Karl Helgason, Katrín Elíasdóttir, Kolbrún Friðriksdóttir, Kristófer Reykjalín Þorláksson, Magnús Hauksson, Mark Berge, Max Naylor, Olga Holownia, Patrick Thomas, Saga Rut Sunnevudóttir, Sara Ósk Þorsteinsdóttir, Sigurður Birkir Sigurðsson, Tihomir Rangelov, Úlfar Bragason, Úlfur Alexander Einarsson, Þórhallur Eyþórsson, Þorsteinn Indriðason, Þórunn Hafstað, Þröstur Almar Þrastarson, Össur Ingi Jónsson.
Fjölmargir aðrir lögðu hönd á plóginn við gerð verkefnanna.