Sýningin Mál í mótun er staðsett í Veröld – húsi Vigdísar. Hún var sett upp á vegum Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar við Háskóla Íslands, í samstarfi við andrúm arkitekta og Gagarín. Mál í mótun var hluti af framlagi stofnunarinnar til Alþjóðlegs áratugar frumbyggjatungumála, IDIL 2022–2032, sem Sameinuðu þjóðirnar ýttu úr vör árið 2022.
Markhópur sýningarinnar er ungmenni á aldrinum 10-19 ára. Boðið er upp á skólaheimsóknir með leiðsögn auk þess sem kennarar fá aðgang að kennsluvef í tengslum við sýninguna þar sem hægt er að sækja verkefni til að vinna með nemendum fyrir og eftir heimsókn og annað ítarefni í tengslum við tungumál.
Á sýningunni Mál í mótun í Veröld – húsi Vigdísar fá gestir tækifæri til að skyggnast inn í heim tungumálanna og kynnast hinum ýmsu tungumálum sem töluð eru í dag, allt frá gríðarstórum heimsmálum til fámennistungumála í útrýmingarhættu. Við fræðumst um hinar fjölmörgu hliðar tungumála með hjálp gagnvirkra margmiðlunarverka og heyrum raddir á þeim ólíku málum sem töluð eru á Íslandi í dag. Við sjáum hvernig tungumál hafa þróast samhliða sögu mannsins á jörðinni í meira en 300.000 ár og hvernig þau hafa dreifst og flakkað heimshorna á milli. Loks kynnumst við lífshlaupi tungumála sem, líkt og önnur lifandi fyrirbæri, verða til, þróast og taka breytingum áður en þau loks deyja út. Þá veltum við fyrir okkur hvernig hægt er að stuðla að varðveislu tungumála svo að þau geti dafnað um ókomna tíð.
Nemendur á málabraut fóru í heimsókn í Veröld - Hús Vigdísar og fengu þar að upplifa sýninguna Mál í mótun. Nemendur voru sammála um að sýningin er afar vel heppnuð og höfðu bæði gagn og gaman af👏🌏 Takk fyrir okkur💛
- Kennari í Menntaskólanum í Reykjavík
Öll atriðin voru bæði áhugaverð og skemmtileg. Mjög flott, alltaf gaman að koma. Innilegar þakkir fyrir okkur.
- Framhaldsskólakennari
Verkefnisstjóri: Birna Arnbjörnsdóttir
Ritstjóri: Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir
Sýningarhönnun: andrúm arkitektar og Gagarín
Gagnvirk miðlun: Gagarín
Innréttingar: andrúm arkitektar
Lýsingarhönnun: Lumex
Sérsmíði: Háskóli Íslands og Járnprýði
Sýningarbúnaður: Origo
Prentun: Logoflex
Hljóðhönnun: Upptekið
Myndband: Gagarín/Magnús Elvar Jónsson
Vigdísarstofnun - alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar og Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands hafa umsjón með sýningunni Mál í mótun í Veröld - húsi Vigdísar. Boðið er upp á heimsóknir með leiðsögn fyrir skólahópa og aðra hópa eftir samkomulagi.
Bóka heimsókn
Sérstakar þakkir: Anh-Đào Katrín Tran, Anna María Bogadóttir, Arjun Singh, Banu Naimy, Betsy Hassett, Cat Gundry Beck, Clara Anne Jégousse, Davor Purusic, Henríetta Skúladóttir, Jeta Ejupi, Kateryna Ruban, Lemke Meijer, Naomi L. Loabile, Nils Wiberg, Nury Homola, Olga Aletta Roux, Shu Yi, Sosefo Manafa Kata, Stanisław Jan Petruk, Theodóra Skúladóttir, Tsering Gyal, Viktoría Žiliutė, Yerim Kim, Ylfa Aino Eldon Aradóttir. Anna Sigríður Einarsdóttir, Ásdís Rósa Magnúsdóttir, Bergur Arnar Hrafnkell Jónsson, Gregg Batson, Diljá Þorbjargardóttir, Hringur Ásgeir Sigurðarson, Julian Meldon D’Arcy, Katelin Parsons, Matthew Whelpton, Rafnhildur Rósa Atladóttir, Rósa Signý Gísladóttir, Valgerður Jónasdóttir, Þorgerður Anna Björnsdóttir, Þórhallur Eyþórsson. Canadian Museum for Human Rights.