Vinir Ara eru skemmtilegar verkefnabækur með refnum Ara og bestu vinum hans, þeim Ásu, Hreini og Lóu sem krakkar þekkja úr kennsluvefnum Icelandic Online – Börn.
Nú eru komnar út fyrstu tvær bækurnar í bókaflokknum um Vini Ara, en alls verða gefnar út sjö bækur. Hver og ein hefur tengingu við ólík námskeið Icelandic Online – Börn, en vefurinn er öllum opinn að kostnaðarlausu.
Kaupa bækur í Bóksölu Stúdenta.
Icelandic Online - Börn er líflegur og litríkur kennsluvefur sem inniheldur yfir 300 skemmtilegar þrautir, sögur og myndbönd sem henta vel þeim sem eru að taka fyrstu skrefin í lestrarnámi.
Á vefnum, sem þróaður var innan Háskóla Íslands, eru sjö námskeið á mismunandi þyngdarstigum. Vefinn má nota í tölvum, símum og á spjaldtölvum - alveg ókeypis.
Bækurnar og kennsluvefurinn um Vini Ara eru sérsniðin að börnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestrarnámi í íslensku, á seinni árum leikskóla og fyrstu árum grunnskóla. Efnið nýtist jafnt þeim sem hafa íslensku að móðurmáli og þeim sem eru að læra tungumálið. Það er tilvalið fyrir þau sem búa erlendis og og vilja þjálfa lestrar- og ritfærni barna sinna í íslensku .
Námsefnið byggist á faglegri þekkingu og rannsóknum á sviði tungumála. Meðal höfunda þess eru sérfræðingar á sviði tölvustuddrar tungumálakennslu, sem byggja á áratugalangri þekkingu og reynslu af annarsmálskennslu, tvítyngi og þróun námsgagna.
Fyrir eldri börn og unglinga sem vilja fræðast um tungumál heimsins hefur sýningin Mál í mótun verið sett upp í Veröld – húsi Vigdísar.
Gestir fá tækifæri til að skyggnast inn í heim tungumálanna og kynnast hinum ýmsu tungumálum sem töluð eru í dag, allt frá gríðarstórum heimsmálum til fámennistungumála í útrýmingarhættu.
Fræðst er um hinar fjölmörgu hliðar tungumála með hjálp gagnvirkra margmiðlunarverka og hægt að hlusta á raddir á þeim ólíku málum sem töluð eru á Íslandi í dag.
Markhópur sýningarinnar eru nemendur á aldrinum 10-19 ára og boðið er upp á leiðsögn fyrir skólahópa.
Icelandic Online - Börn, Vinir Ara og Mál í mótun hlutu stuðning eftirfarandi aðila:
Barnamenningarsjóður, Barnavinarfélagið Sumargjöf, Íslenskusjóðurinn, Menntamálastofnun, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Nýsköpunarsjóður námsmanna, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Styrktarsjóður Áslaugar Hafliðadóttur, Þróunarsjóður innflytjendamála og Þróunarsjóður námsgagna.
Verkefnin taka mið af Aðalnámskrá leik- og grunnskóla og styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 4, 9 og 10.